Um Nonnasögur
Að lesa bók fyrir börnin sín er góð afþreying. Lesturinn skapar notalega stund og styrkir tengslin milli barns og foreldris. Að hlusta eykur líka orðaforða barnanna. Lestur er frábær leið til að enda daginn með barninu sínu áður enn það fer að sofa.
Nonnasögur eru stuttar sögubækur ætlaðar börnum á aldrinum 2 - 6 ára. Ólíkt mörgum barnabókum fyrir þennan aldurshóp er mikil áhersla á textann og að börnin læri af bókunum. Ekki aðeins að málfar eflist við að hlusta á lesturinn, bókunum er líka ætlað að kenna góða hegðun. Málfar bókanna er einfalt en það er gert til að börnin nái dýpri skilningi, sérstaklega þegar kemur að tilfinningum í bókunum. Með því að orða tilfinningar og útskýra er þannig gerð tilraun til að auka tilfinningagreind barnanna. Sögupersónurnar eru líka látnar setja sig í spor annarra með von um að auka samkennd við lestur bókanna.
Bækurnar eru skrifaðar með það í huga að efla tilfinningaþroska barna og auka félagslega hæfni. Einblínt er á það góða og sögurnar hvetja foreldra ekki síður en börnin til að bæta samskiptahæfni sína. Nonnasögur nýtast einnig sem góðar hugmyndir af samverustundum fjölskyldunnar og hvetja foreldra og börn til að eyða meiri tíma saman. Það þarf ekki alltaf að kosta mikið að lenda í ævintýrum. Aðalatriðið er að gefa börnunum tíma með foreldrum sínum.