Bok 1
bok 1,mynd1 a com net.jpg
bok 1,mynd2 a com net.jpg
bok 1 a com net.jpg
Nonni fer í bátsferð
Nonni fer í bátsferð er fyrsta bókin af Nonnasögum. Í þessari sögu fer Nonni í bátsferð með pabba sínum og veiðir fisk. Þetta er falleg saga sem minnir á það fallega í lífinu.
Frá höfundi:Margir foreldrar eiga minningu frá því þegar þau voru börn og toppurinn í tilverunni var að fara í ísbíltúr um helgar. Vinsæll viðkomustaður var höfnin þar sem bátarnir voru skoðaðir. Nonni á sér draum um að prófa að sigla út á sjó með pabba sínum. Pabbi ákveður að koma stráknum sínum á óvart og skipuleggur óvissuferð. Nonni fer í bátsferð minnir okkur á það hversu auðvelt er að skapa ógleymanlegar stundir með börnunum sínum.
Bok 2
bok 2,mynd1 a com net.jpg
mynd 11 a net.gif
bok 2 a com net.jpg
Nonni og ógeðismaturinn
Frá höfundi:Eins og margir aðrir á ég börn sem smakka ekki margar tegundir af mat. Börnin mín eru líka mjög matgrönn og klára sjaldan af diskunum sínum. Hugmyndin á bak við þessa bók er að verðlauna börnin fyrir að standa sig vel í því að smakka nýjan mat og klára af diskunum sínum. Aðferðin sem sýnd er í bókinni er mjög árangursrík. En hún virkar ekki oftar en einu sinni nema samningurinn standi. Barnið verður að standa við sitt og foreldrarnir líka. Ekki verðlauna barnið of mikið og aðeins ef það hefur klárað sinn hluta. Gætið þó að því að gera raunhæfar kröfur til barnanna. Galdurinn er að gefa barninu nægju sína af hollustu svo það hafi ekki lyst á nema ögn af verðlaununum. Kveðja Helga Jóhanna Úlfarsdóttir
Í þessari sögu lendir Nonni í vandræðum því hann vill ekki borða matinn sem mamma er búin að vanda sig við að elda. Sem betur fer kann mamma góða lausn.
Bok 3
bok 3 a com net.jpg
bok 3,mynd1 a com net.jpg
bok 3,mynd2 a com net.jpg
Nonni fer einn að sofa
Í þessari bók æfir Nonni sig að sofna sjálfur og fær stimpil á verðlaunaspjaldið sitt þegar vel gengur. Þetta er falleg saga sem hjápar börnum að búa til betri svefnvenjur. Góða nótt
Frá höfundi:Margir foreldrar eiga í vandræðum með svefntíma barna sinna. Í þessari bók er kennd einföld og áhrifarík aðferð við að þjálfa barnið í að sofna sjálft. Ef þið ákveðið að prófa þessa aðferð er gott að hafa eftirfarandi í huga: Hafið háttatíma alltaf á sama tímanum, líka um helgar. Búið til góðar venjur fyrir háttinn og framkvæmið þær alltaf í sömu röðinni. Bókin eru foreldrum og barninu kennt að nota verðlaunaspjald til þjálfa upp góðar svefnvenjur.
Bok 4
bok 4 a com net.jpg
bok 4,mynd1 a com net.jpg
bok 4,mynd2 a com net.jpg
Nonni og risastóri pappakassinn
Frá höfundi:Þessi saga gefur fjölskyldum hugmynd um það hvernig er hægt að búa til skemmtilegt leikfang án þess að það kosti mikið. Þegar ég var lítil gerðum við systkinin líka oft hús í herberginu þar sem teppi og sængur voru þakið og húsgögn eða stólar í hlutverki veggja. Það er mín von að þessi bók hvetji börn og foreldra til að nýta sköpunargáfu sína til að búa til fallega hluti úr verðlausum efnivið. Það þarf ekki alltaf að kosta mikið að lenda í ævintýrum.
Í þessari bók búa Nonni og vinur hans Jónas til hús úr risastórum pappakassa með góðri hjálp pabba.
Bok 5
bok 5 a com net.jpg
bok 4,mynd1 a com net.jpg
bok 4,mynd2 a com net.jpg
Nonni eignast nýjan vin
Frá höfundi:Hugmyndina af þessari bók fékk ég í námi mínu í uppeldisfræðum. Mig langaði að búa til klípusögu sem myndi hjálpa börnum að setja sig í spor annarra. Von mín er sú að þessi bók nýtist við að efla samskiptahæfni og siðferðiskennd barna. Þó bókin sé með fræðilegan grunn er hún skemmtileg saga um leikskólalíf barna.
Nonna finnst gaman í leikskólanum og leikur sér alltaf við Tómas vin sinn. Nýr strákur sem Nonna líst vel á byrjar í leikskólanum. Nonni lofar að leika bæði við nýja strákinn og Tomma og þarf nú að gera upp á milli þeirra. Hvernig ætli Nonni leysi úr þessum vandræðum?
Bok 6
bok 6 a com net.jpg
bok 6,mynd1 a com net.jpg
bok 6,mynd2 a com net.jpg
Nonni og týndi kisi
Frá höfundi:Þá er sjötta sagan komin út. Þessi fallega saga segir frá því þegar Nonni og stóra systir hans finna lítinn villtan kött í garðinum. Þau taka hann inn í húsið og gefa honum að borða. Þau eru fljót að hænast að honum og vilja eiga hann. Foreldrar þeirra eru ekki jafn ánægðir með köttinn enda fylgir því mikil ábyrgð að eiga gæludýr. Sagan segir þannig frá vonbrigðum barnanna þegar aðstæður koma upp sem ekki er hægt að eiga við. Sem betur fer eiga þau góðan afa sem er tilbúinn að taka köttinn að sér.
Nonni og Anna stóra systir eru úti að leika þegar þau finna kettling í garðinum sínum sem virðist vera villtur. Börnin taka hann inn og hænast að honum. Mamma og pabbi eru þó ekki jafn ánægð. Hvað ætli verði um litla kettlinginn?
Bok 1
Bok 2
Bok 3
Bok 4
Bok 5
Bok 6
Um Nonnasögur
House
forsida
Stjornuleikur
solusida
um okkur